|
Upplýsingavefur um eyfirska báta og bátasmiði Lesendur eru beðnir að hafa það í huga við lestur þess sem vefurinn inniber að í raun er hann í vinnslu og verður vonandi næstu árin. Mikið verk er enn óunnið við söfnun mynda, myndvinnslu og að koma myndunum sem best fyrir á vefnum.
Einnig er fyrir stafni vinna við texta sem vonast er til að bólgni út með leiðréttingum og aukinni vitneskju um eyfirska bátasmíði.
Vonast er til að gott lífsmark verði sýnilegt á vefnum og er þar treyst á lesandann. Þeim mun meiri upplýsingar sem berast skrásetjara þeim mun meiri hreyfing verður á vefnum.
Frá lesendum er vænst upplýsinga um báta og skip sem ekki hefur tekist að tengja skipasmið eða skipasmíðastöð. Fljótlegast er að finna þessa munaðarleysingja í meðfylgjandi skrám.
Einnig hangir á spýtunni bón um að skrásetjara verði sendar myndir af bátum byggðum í Eyjafirði þannig að sögunni verði einnig haldið til haga á myndrænan máta.
Eftir að ofanskráð var fest á blað hefur verið leitað fanga beggja vegna Eyjafjarðar og nær vefurinn nú yfir svæðið frá Horni að Fonti á Langanesi.
Önnur og þriðja lína efnisyfirlits, neðan frá talið, leiða skoðendur að upplýsingum um báta og bátasmiði vestan og austan Eyjafjarðar.
Sjálfsögð kurteisi við lesendur er að skrásetjari geri grein fyrir tilvist sinni þannig að þeir geti lagt mat á hvort hann hafi yfirhöfuð einhverja þekkingu á því, sem vefurinn fjallar um.
Fyrst er til að taka að fæðingarár skrásetjara er 1935 og uppalinn er hann í fjöruborðinu á Grenivík.
Árið 1957 lá leið skrásetjara til Patreksfjarðar í vélvirkjanám og til Akureyrar kom hann árið 1961 og hefur dvalið þar síðan. Fyrsti vinnustaðurinn á Akureyri var Vélsmiðjan Oddi hf. þá Vélsmiðjan Valur sf. og frá árinu 1964 til ársins 2004 Slippstöðin hf. á Akureyri.
Allir þessir vinnustaðir buðu upp á náin samskipti við starfsmenn útgerðarfyrirtækja og útgerðamenn og þá sér í lagi þá er lögðu leið sína í Slippstöðina hf. þar sem skrásetjari var lengst af verkstjóri og verkefnastjóri viðgerðarverka.
Félagsstörf í samfellt 30 ár hafa einnig leitt til kynna við fjölda verkstjóra um land allt og gefið skrásetjara kost á innsýn í fjölmörg fyrirtæki.
Skrásetjari sat í stjórn Verkstjórafélags Akureyrir og nágrennis sem gjaldkeri og formaður frá 1974 til 1995 og í stjórn Verkstjórasambands Íslands frá 1981 til 2001. Þar af varaforseti samtakanna í 6 ár og önnur 6 ár sem forseti þeirra.
Ritstjórn Verkstjórans hefur hann haft með höndum í tæp 30 ár.
Skrásetjari lætur lesendum eftir að fella dóm um hæfi hans eða óhæfi til ritunar þess sem vefurinn inniber.
Árni Björn Árnason.
Sími: 461-1695.
Sími: 893-1695.
Dalsgerði 7F, Akureyri.
|